Reykjavik, 2011-10-03 14:16 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Aðgerðaáætlun Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og eigenda vegna fjárhagsvanda OR (Planið) var kynnt 29. mars 2011. Í henni fólust margháttaðar aðgerðir og er framvinda þeirra á fyrri helmingi ársins 2011 á áætlun.
Heildarárangur H1 er um 312 mkr. umfram áætlun tímabilsins. Mestur árangur er í lækkun fjárfestinga í veitukerfum auk þess sem flestir þættir verkefnisins ganga vel. Einstakir liðir Plansins eru skýrðir nánar í töflunni að neðan. Í henni koma fram áætlaðar heildarfjárhæðir vegna alls ársins 2011 og framvinda til árshlutauppgjörs eftir fyrstu sex mánuði ársins.
Áhrif ytri breyta eru neikvæð sem nemur 129 mkr. á tímabilinu. Nettó niðurstaða Plansins er því jákvæð sem nemur 183 mkr.
Planið | Planið 2011 | Raun 2011 1H |
Frestun fjárfestinga vegna fráveitu | 0 | 89.273 |
Lækkun fjárfestinga í veitukerfum | 1.205.000 | 595.616 |
Lækkun annarra fjárfestinga | 250.000 | 121.869 |
Hækkun gjaldskrár | 1.122.000 | 285.239 |
Lækkun rekstrarkostnaðar | 300.000 | 44.791 |
Eignasala | 1.000.000 | 123.128 |
Víkjandi lán frá eigendum | 8.000.000 | 7.925.360 |
Samtals | 11.877.000 | 9.185.276 |
Eignasala skv. áður samþ. fjárhagsáætlun | -375.000 | -124.875 |
Samtals | 11.502.000 | 9.060.401 |
Allar fjárhæðir eru í þúsundum króna.