Icelandair flutti 168 þúsund farþega í september. Það er mesti farþegafjöldi í septembermánuði í sögu félagsins og jafngildir 15% aukningu frá síðasta ári. Sætaframboð Icelandair var aukið um 23% á tímabilinu og sætanýting nam 78,3% sem er yfir meðallagi í september. Sætanýting lækkaði um 3,7 prósentusig í samanburði við metsætanýtingu félagsins í september í fyrra. Farþegaaukning varð mest á ferðamannamarkaðnum til Íslands, eða um 24%. Sú aukning er í samræmi við stefnu félagsins að fjölga ferðamönnum til Íslands utan háannatíma.
Farþegar hjá Flugfélagi Íslands voru tæplega 30 þúsund í september og fjöldi þeirra jókst um 9% miðað við sama tíma í fyrra. Sætanýting Flugfélagsins var 66,5% og lækkaði lítillega á milli ára. Seldum tímum í leiguflugi fækkaði á milli ára um 11%. Frakt flutningar jukust um 4% miðað við september á síðasta ári.
Framboð á gistinóttum hjá Flugleiðahótelunum jókst um 12% á milli ára og herbergjanýtingin var 80,6%. Endurnýjað Icelandair Hotel Reykjavik Natura hefur fengið mjög góðar viðtökur og var septembermánuður metmánuður í sögu hótelsins.
ICELANDAIR | SEP 11 | CHG (%) | YTD 11 | CHG (%) |
Number of Passengers (PAX) | 168,013 | 15% | 1,393,620 | 19% |
Load Factor (%) | 78.3% | -3.7 ppt | 79.6% | 1.0 ppt |
Available Seat KM (ASK´000) | 611,970 | 23% | 4,892,249 | 20% |
AIR ICELAND | SEP 11 | CHG (%) | YTD 11 | CHG (%) |
Number of Passengers (PAX) | 29,984 | 9% | 271,918 | 4% |
Load Factor (%) | 66.5% | -0.3 ppt | 69.8% | 1.6 ppt |
Available Seat KM (ASK´000) | 16,257 | 16% | 141,492 | 9% |
CAPACITY | SEP 11 | CHG (%) | YTD 11 | CHG (%) |
Fleet Utilization (%) | 92.3% | 5.2 ppt | 92.3% | -0.9 ppt |
Sold Block Hours | 2,703 | -11% | 26,603 | 3% |
ICELANDAIR CARGO | SEP 11 | CHG (%) | YTD 11 | CHG (%) |
Available Tonne KM (ATK´000) | 15,929 | 26% | 130,266 | 11% |
Freight Tonne KM (FTK´000) | 6,401 | 4% | 55,691 | 2% |
ICELANDAIR HOTELS | SEP 11 | CHG (%) | YTD 11 | CHG (%) |
Available Hotel Room Nights | 17,850 | 12% | 198,852 | 6% |
Sold Hotel Room Nights | 14,385 | 26% | 142,448 | 8% |
Utilization of Hotel Rooms | 80.6% | 9.3 ppt | 71.6% | 1.6 ppt |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010