Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 22 1026


Föstudaginn 21. október kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi.

Í þessu útboði verða seld bréf í nýjum ellefu ára flokki ríkisbréfa RIKB 22 1026. Flokkurinn ber

7,25% árlega nafnvexti með vaxtagjalddaga 26. október ár hvert. Lokagjalddagi bréfsins er 26. Október 2022. Nánari lýsingu á flokknum fylgir í viðhengi með þessari frétt og frekari upplýsingar er hægt að sjá á www.lanamal.is. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 25. október 2011. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 26.október 2011.


Attachments