Fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs miðvikudaginn 2. nóv. 2011 og var henni vísað til seinni umræðu sem verður þann 14. nóv. n.k.. Jafnframt er lögð fram 3ja ára áætlun fyrir árin 2013 – 2015.
Helstu viðmið fjárhagsáætlunar Fljótsdalshéraðs eru:
-
Jafnvægi skal vera á milli samanlagðra rekstartekna og –gjalda A- og B-hluta á hverju þriggja ára tímabili.
- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 verður afgangur af rekstri bæði A- og B- hluta á árinu.
-
Framlegð rekstrar (niðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði) skal vera á bilinu 15 – 20%.
- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 verður framlegðarhlutfall A-hluta 21% og í samstæðu A og B hluta 25%.
-
Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nemi ekki lægri fjárhæð en sem nemur afborgunum og vöxtum af langtímalánum.
- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 mun veltufé frá rekstri nema 477 millj. kr. en afborganir af skuldbindingum verða um 415 millj. kr. í samstæðu A og B hluta. Í A hluta nemur veltufé frá rekstri um 345 millj. kr. en greiðslur vegna skuldbindinga nema um 328 millj. kr.
-
Skuldir og skuldbindingar samstæðu (A- og B-hluta) fari ekki yfir 250% af skilgreindum tekjum.
- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 verður skuldahlutfall A-hluta 217% og samstæðu A og B hluta um 252%.
- Árið 2015 verður skuldahlutfall A hluta um 199% og í samstæðu A og B hluta er áætlað að skuldahlutfallið nemi um 224%.
Inni í skuldbindingum sveitarfélagsins eru kaup á fasteignum ríkisins vegna málefna fatlaðra að fárhæð 122 millj. kr. sem væntanlega verður gengið frá á árinu 2011 og síðan er í fjárhagsáætlun gert ráð fyrir að farið verði af stað með byggingu á hjúkrunarheimili og verði á árunum 2012 og 2013 varið 1.000 millj. kr. til þess verkefnis. Í báðum þessum verkefnum koma framlög á móti frá ríkisvaldinu á næstu árum til að mæta stofnkostnaði.
Bygging hjúkrunarheimilisins er löngu orðin tímabær og vonir standa til þess að hægt verði að koma verkefninu í formlegan farveg fljótlega á næsta ári og búa öldruðum þar með þá umgjörð sem þeim ber og efla í leiðinni atvinnustigið á svæðinu og rekstur HSA.
Skuldbindingar án HEF (veitustofnanir) nema 228% af heildartekjum í árslok 2012 og verða komnar í 208% í árslok 2015.
Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri