Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:
RIKB 13 0517:
Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 8.100 m.kr. að nafnverði. 1 tilboði var tekið fyrir 2.000 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 105,100 (3,71% ávöxtunarkröfu).
RIKB 16 1013:
Alls bárust 21 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.500 m.kr. að nafnverði. 11 tilboðum var tekið fyrir 4.050 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 104,590 (4,93% ávöxtunarkröfu).
Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 8. nóvember. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 9. nóvember 2011.