Fréttatilkynning um óbreytta útgáfuáætlun.

Með tilvísun til fyrri fréttatilkynningar 7. nóvember um skipti á ríkisbréfum RIKH 18 1009 yfir í RIKS 30 0701 vill fjárstýring Íbúðalánasjóðs upplýsa um fyrirhugaða ráðstöfun eignarinnar.


Fjárstýring áætlar að losa um eign Íbúðalánasjóðs á  RIKS 30 0701 á næstu 2-3 árum og með hliðsjón af markaðsaðstæðum.

Endurskoðuð útgáfuáætlun Íbúðalánasjóðs vegna ársins 2011 sem birt var í Kauphöll 28. júní s.l. heldur gildi sínu.