NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) hefur samþykkt umsókn stjórnar Haga hf. (670203-2120) um töku hlutabréfa félagsins til viðskipa á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Samþykkið er háð því að félagið uppfylli skilyrði Reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutafjár fyrir skráningardag. Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hluti Haga á markaði verði 15. desember nk., en Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.
NASDAQ OMX Iceland hf. samþykkir töku hluta í Högum hf. til viðskipta á Aðalmarkaði að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár
| Source: NASDAQ Iceland hf.