Nýjustu hagtölur eru í meginatriðum í takt við spá Seðlabankans, sem birt var í nóvemberhefti Peningamála. Efnahagsbatinn hefur haldið áfram, þrátt fyrir að það dragi úr hagvexti í heiminum og óvissa hafi aukist. Verðbólga er enn fyrir ofan verðbólgumarkmið Seðlabankans en nýleg þróun bendir til þess að því verði náð á næstu misserum.
Veruleg óvissa ríkir um þann feril nafnvaxta sem þarf til þess að ná verðbólgumarkmiðinu. Í ljósi efnahagshorfa og hugsanlega óhagstæðrar alþjóðlegrar efnahagsþróunar virðist núverandi vaxtastig um það bil við hæfi á komandi mánuðum. Horft lengra fram á veginn verður hins vegar nauðsynlegt að draga úr núverandi slaka peningastefnunnar eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum fer eftir framvindu verðbólgunnar.
Vextirnir verða sem hér segir:
Daglánavextir | 5,75% |
Vextir af lánum gegn veði til sjö daga | 4,75% |
Hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum | 4,5% |
Innlánsvextir | 3,75% |
Þessi tilkynning er upprunalega birt á vefsetri Seðlabanka Íslands. Hún hefur ekki verið birt opinberlega á Evrópska efnahagssvæðinu af hálfu Seðlabanka Íslands, sbr. skilgreiningu laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.
Vísað er til vefseturs Seðlabanka Íslands http://sedlabanki.is