Landsvirkjun semur um sambankalán í íslenskum krónum


Landsvirkjun skrifaði í dag undir sambankalán í íslenskum krónum til þriggja ára að fjárhæð 10,5 milljarðar króna.  Lánið er veltilán og getur fyrirtækið dregið á lánið og endurgreitt eftir þörfum.  Lánið er með framlengingarheimild til tveggja ára og getur lánstími því að hámarki orðið fimm ár.

Um lántökuna sáu Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn.

Sambankalánið er viðbót við annað sambankalán að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala sem tilkynnt var þann 27. desember síðastliðinn.  Markmið lántakanna er að Landsvirkjun hafi ávallt tryggan aðgang að fyrirvaralausri fjármögnun ef hefðbundnar fjármögnunarleiðir lokast tímabundið.  Með lántökunum hefur Landsvirkjun þannig samtals tryggt sér fjármögnun að jafnvirði um 35 milljarða króna til allt að 5 ára.

 

Reykjavík, 30. desember 2011

Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs,
í síma 515-9010, netfang: rafnar@lv.is