Útboð ríkisvíxla RIKV 12 0416 og RIKV 12 0716


Fimmtudaginn 12. janúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 12 0416 og RIKV 12 0716 sem eru með gjalddaga 16. apríl og 16. júlí 2012.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagur 16. janúar 2012.

Sótt verður um að RIKV 12 0716 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á Íslandi þriðjudaginn 17. janúar 2012.


Attachments