Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 16 1013


 Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 16 1013 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.

 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 16 1013:

Alls bárust 11 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.450 m.kr. að nafnverði. 3 tilboðum var tekið fyrir 1.800 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 104,200 (4,96% ávöxtunarkröfu).

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 7. febrúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 8. febrúar 2012.

 


Attachments