Í febrúar 2011 var tilkynnt um þá ákvörðun stjórnar Icelandair Group hf. að kanna skráningu félagsins í aðra kauphöll til viðbótar við núverandi skráningu hjá Nasdaq OMX á Íslandi. Í september síðastliðnum var ferlinu frestað vegna krefjandi aðstæðna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Stjórn Icelandair Group hefur nú ákveðið að endurvekja ferlið og skoðar nú mögulega viðbótarskráningu í kauphöllina í Osló.
Af þessu tilefni hefur Icelandair Group ráðið útibú Skandinaviska Enskilda Banken AB í Osló ásamt Íslandsbanka hf. til að vera umsjónaraðilar í skráningarferlinu.
Meirihluti kostnaðar og efnahagsreiknings Icelandair Group er í Bandaríkjadollar. Af þessum sökum mun félagið frá og með 1. ársfjórðungi ársins 2012 breyta um uppgjörsmynt og birta reikninga sína í Bandaríkjadollar.
Nánari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri, gsm: 896 1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, gsm: 665 8801