Síðan fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair Group hf. lauk þá hefur staðið til að selja dótturfélag þess, SmartLynx í Lettlandi. Í lok árs 2011 var gengið frá samningi við stjórnendur SmartLynx um kaup á öllu hlutafé félagsins. Í samningnum voru nokkrir fyrirvarar sem nú hafa verið uppfylltir.
Salan er bókfærð á árinu 2011 og hefur jákvæð áhrif á afkomu Icelandair Group að fjárhæð 1,1 milljarð króna, þar af eru tekjuskattsáhrif jákvæð um 700 milljónir króna. Áhrif á eigið fé eru óveruleg.
Eftir söluna er Icelandair Group enn í ábyrgð fyrir leigugreiðslum á tveimur Airbus 320 vélum en ábyrgðin rennur út í apríl 2012. Jafnframt er Icelandair Group í ábyrgð vegna leigu á tveimur Boeing 767 vélum og renna þeir leigusamningar út í lok árs 2012. Allar þessar flugvélar eru reknar á flugrekstrarskírteini SmartLynx.
Frekari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri, sími: + 354 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, sími: +354 665-8801