Icelandair jók framboð sitt í janúarmánuði um 7% miðað við janúar á síðasta ári. Farþegaaukning á sama tíma nam 13%. Sætanýting var 69,1% og jókst um 3,5 prósentustig á milli ára. Sætanýtingin í janúar hefur aldrei verið hærri. Farþegum fjölgaði á öllum mörkuðum félagsins en þó mest á markaðinum til Íslands þar sem aukningin nam 28%.
Flugfélag Íslands flutti tæplega 24 þúsund farþega í janúar. Sætanýtingin nam 64,9% og lækkaði um 0,4 prósentustig á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi drógust saman og voru 9% færri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar jukust um 20% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá Flugleiðahótelunum jókst um 12% á milli ára. Herbergjanýting var 45,8% og var 1,1 prósentustigi hærri en í janúar í fyrra.
ICELANDAIR | JAN 11 | CHG (%) |
Number of Passengers (PAX) | 93,184 | 13% |
Load Factor (%) | 69.1% | 3.5 ppt |
Available Seat KM (ASK´000) | 369,373 | 7% |
AIR ICELAND | JAN 12 | CHG (%) |
Number of Passengers (PAX) | 23,721 | 0% |
Load Factor (%) | 64.9% | -0.4 ppt |
Available Seat KM (ASK´000) | 11,432 | -1% |
CAPACITY | JAN 12 | CHG (%) |
Fleet Utilization (%) | 88.5% | -11.5 ppt |
Sold Block Hours | 2,921 | -9% |
ICELANDAIR CARGO | JAN 12 | CHG (%) |
Available Tonne KM (ATK´000) | 11,929 | 11% |
Freight Tonne KM (FTK´000) | 6,770 | 20% |
ICELANDAIR HOTELS | JAN 12 | CHG (%) |
Available Hotel Room Nights | 18,445 | 12% |
Sold Hotel Room Nights | 8,440 | 15% |
Utilization of Hotel Rooms | 45.8% | 1.1 ppt |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010