Um nýliðna helgi sagði Katrín Ólafsdóttir stjórnarformaður sig úr stjórn Íbúðalánasjóðs til að taka sæti í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands. Katrín hefur setið í stjórn Íbúðalánasjóðs frá 1. janúar 2011. Eftirmaður hennar í stjórn hefur ekki verið skipaður af velferðarráðherra en þangað til mun Sjöfn Ingólfsdóttir varaformaður taka sæti formanns.
Íbúðalánasjóður og stjórn sjóðsins þakka Katrínu Ólafsdóttur fyrir gott samstarf.