Norræni fjárfestingarbankinn lækkar vexti á lánum Orkuveitunnar


Reykjavík, 2012-03-14 13:25 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Norræni fjárfestingarbankinn hefur ákveðið að lækka vexti á lánum Orkuveitu Reykjavíkur (OR) vegna þess árangurs sem náðst hefur í rekstri. Fulltrúar bankans hafa fylgst náið með framvindu þeirrar aðgerðaáætlunar sem OR og eigendur fyrirtækisins samþykktu síðastliðið vor. Allir þættir hennar eru á áætlun. Framvindan er kynnt reglulega í tengslum við árshlutauppgjör OR.
Áformað er að kynna næstu framvinduskýrslu samhliða birtingu ársreiknings samstæðu OR í lok vikunnar.
Stjórnendur OR líta á þetta sem merki um aukinn trúverðugleika fyrirtækisins á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Síðari hluta árs 2011 samdi OR um áhættuvarnir við hollenska ING bankann, sem felur í sér útlánaáhættu fyrir bankann.