Ársreikningur Landsvirkjunar fyrir árið 2011

Lækkun skulda og aukið sjóðstreymi


Helstu atriði ársreiknings

  • Rekstrartekjur námu 436,2 milljónum USD (55,4 ma.kr.) sem er 15,5% aukning frá árinu áður.1
     
  • EBITDA nam 345,2 milljónum USD (43,8 ma.kr.). EBITDA hlutfall er 79,1% af tekjum, en var 78,9% árið 2010.
     
  • Handbært fé frá rekstri nam 267,2 milljónum USD (33,9 ma.kr.) sem er 16,4% aukning frá árinu 2010.
     
  • Hagnaður eftir skatta nam 26,5 milljónum USD (3,4 ma.kr.), en var 72,9 milljónir USD árið áður.
     
  • Lausafjárstaða Landsvirkjunar er sterk og hafði fyrirtækið í árslok aðgang að 645,7 milljónum USD (82 ma.kr.). Sterk lausafjárstaða tryggir getu fyrirtækisins til að standa straum af afborgunum lána á næstu árum.
     
  • Nettó skuldir lækkuðu á árinu um 171 milljón USD (21,7 ma.kr.) og voru í árslok 2.503 milljónir USD (317,9 ma.kr).
     
  • Stjórn félagsins mun á aðalfundi gera tillögu um arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 1,8 milljarðar króna (14,2 milljónir USD) fyrir árið 2011.

 

Hörður Arnarson, forstjóri:

 „Fjárhagsstaða fyrirtækisins á árinu 2011 batnaði nokkuð frá fyrra ári einkum vegna tekjuaukningar, sem rekja má til breytinga á samningum um raforkuverð og hækkandi álverðs.

Lækkun skulda og bætt sjóðstreymi á árinu valda því að lykilmælikvarðar um fjárhagslegan styrk fyrirtækisins þróast í rétta átt þótt enn vanti upp á að fyrirtækið standist samanburð við erlend raforkufyrirtæki og kröfur erlendra matsfyrirtækja. Mikilvægt er því að bæta þessar kennitölur enn frekar á næstu árum.

Framkvæmdir við Búðarháls eru nú í fullum gangi og gert er ráð fyrir að virkjunin taki til starfa í árslok 2013. Næstu verkefni fyrirtækisins verða síðan á Norðausturlandi þar sem í ár er unnið að umfangsmiklum undirbúningi við hönnun virkjana í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum.

Fyrirtækið mætir áfram áhuga viðskiptavina, nýrra jafnt sem eldri, á kaupum á raforku en gera má ráð fyrir að aðstæður í efnahagsmálum heimsins ráði miklu um hvenær samningar takist.“

 

Lykiltölur úr rekstri

Um ársreikninginn
Ársreikningur Landsvirkjunar er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskila­stöðlum (IFRS) og er hann í Bandaríkjadölum sem er starfrækslugjaldmiðill móður­félagsins. Meðal tekna eru nú færðar innleystar áhættuvarnir tengdar álverði sem voru áður færðar á meðal fjármunatekna og fjármagnsgjalda. Breytt framsetning í rekstrarreikningi hefur ekki áhrif á afkomu samstæðunnar eða fjárhagsstöðu.


Rekstrarreikningur
Rekstrartekjur samstæðunnar jukust um 58,5 m. USD frá árinu áður, eða úr 377,6 m. USD í 436,2 m. USD. Aukningin skýrist aðallega af hærra orkuverði, en selt magn lækkaði lítillega milli ára. Hækkun orkuverðs kemur til vegna hærra álverðs á heimsmarkaði og þróunar verðlagsvísitalna. Meðalheild­söluverð til almenningsrafveitna (án flutningskostnaðar), var 3,6 kr./kWst á árinu 2011 samanborið við 3,4 kr./kWst árið áður. Meðalverð til iðnaðar var 28,7 USD/MWst árið 2011 en var 25,7 USD/MWst árið áður. Meðalverð til iðnaðar er reiknað með flutningskostnaði þar sem það á við. Flutningstekjur voru nær óbreyttar milli ára í USD talið.

Rekstrarkostnaður án afskrifta og virðisrýrnunar nam 91 m. USD á árinu en var 79,6 m. USD árið áður. Rekstrarhagnaður samstæðunnar fyrir afskriftir, EBITDA, nam 345,2 m. USD. Að teknu tilliti til afskrifta nam rekstrar­hagnaður, EBIT 237 m. USD. EBITDA hlutfallið er 79,1% en var 78,9% árið 2010. Vaxtagjöld hækka milli ára á meðan jákvæður gjaldeyrismunur lækkar. Meðalnafnvextir langtímalána voru um 3,5% á árinu 2011 en voru um 2,6% árið áður að teknu tilliti til ríkisábyrgðargjalds.

Hluti af orkusölu­samningum móðurfélagsins eru tengdir þróun álverðs. Alþjóðlegir reikningsskila­staðlar krefjast þess að sú tenging sé reiknuð upp sem innbyggð afleiða. Reiknuð breyting á verðmæti þessarar innbyggðu afleiðu færist í rekstrarreikning og getur haft mikil áhrif á fjármagnsliði félagsins. Gjaldeyrismunur og gangvirðisbreytingar eru að mestu leyti óinnleyst og verður að hafa það í huga við mat á afkomu fyrirtækisins. Hagnaður ársins var 26,5 m. USD en 72,9 m. USD árið áður.

Í framsetningu stjórnenda eru óinnleystir fjármagnsliðir sérgreindir. Þar má sjá að hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 106,1 m. USD á árinu en var 90 m. USD  árið áður sem er 17,9% aukning.


Efnahagsreikningur
Heildareignir Landsvirkjunar voru samkvæmt efnahagsreikningi 4.622 m. USD í árslok 2011.  Eigið fé fyrirtækisins var 1.661 m. USD og hefur eiginfjárhlutfall hækkað frá fyrra ári. Það var 35,9% í árslok 2011 en 34,0% í lok árs 2010.

Vaxtaberandi skuldir námu 2.741 m. USD í lok árs 2011 og höfðu lækkað um 198 m. USD frá árslokum 2010 þegar þær námu 2.939 m. USD. Að teknu tilliti til handbærs fjár og bundinna innstæða þá námu nettó skuldir Landsvirkjunar 2.503 m. USD í árslok. Veginn meðallíftími lánasafnsins var um 7,6 ár.

Handbært fé í árslok 2011 var 230 m. USD og að auki hefur fyrirtækið aðgang að samningsbundnum veltilánum og er óádreginn hluti þeirra 286 m. USD. Þar að auki eru óádregin langtímalán að fjárhæð 130 m. USD. Laust fé var því alls 646 m. USD. 


Sjóðstreymi
Landsvirkjun skilaði ágætu sjóðstreymi á árinu 2011. Veltufé frá rekstri (FFO) nam 255,6 m. USD en var 218,6 m. USD árið 2010. Handbært fé frá rekstri samstæðunnar nam 267,2 m. USD.  Fjárfestingarhreyfingar námu 107,7 m. USD þar sem framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun voru fyrirferðamestar. Afborganir lána umfram lántökur námu 185,3 m. USD. Handbært fé fyrirtækisins lækkaði um 35,6 m. USD á árinu og var 230 m. USD í árslok.


Kennitölur
Nettó skuldir lækka á árinu og batna kennitölur þeim tengdar. Skuldsetning samstæðunnar mæld á móti rekstrarhagnaði fyrir afskriftir (nettó skuldir / EBITDA) lækkar úr 8,97 í árslok 2010 í 7,25 í árslok 2011. Stefnt er að því að lækka þessa kennitölu enn frekar með áframhaldandi niðurgreiðslu skulda. Einnig batnar hlutfall veltufjár frá rekstri (FFO) á móti nettó skuldum og fer úr 8,2% í 10,2% í árslok 2011.

Þegar litið er til fjármagnsliða þá lækkar vaxtaþekjan (EBITDA / nettó vaxtagjöld) í 3,06 en var 3,68 í árslok 2010 vegna hærri vaxtagjalda. Hlutfall veltufjár frá rekstri (FFO) á móti vaxtagjöldum lækkar af sömu ástæðu úr 2,58 í lok árs 2010 í 2,19 í árslok 2011.

Þar sem arðsemi eiginfjár reiknast frá hagnaði þá geta innbyggðar afleiður og óinnleystur gjaldeyrismunur haft mikil áhrif á niðurstöðuna, en arðsemi eigin fjár lækkaði úr 4,7% fyrir árið 2010 í 1,6% í árslok 2011.


Horfur í rekstri
Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun ganga samkvæmt áætlun og stefnt er að gangsetningu hennar í árslok 2013. Landsvirkjun hefur þegar tryggt fjármagn til verkefnisins. Félagið vinnur áfram að undirbúningi á öðrum virkjanakostum, m.a. jarðhitavirkjana á Norðausturlandi, til að mæta þörfum nýrra og núverandi viðskiptavina.

Tekjur Landsvirkjunar eru enn að umtalsverðu leyti háðar álverði á heimsmarkaði, en álverð er það sem af er árinu 2012 nokkru lægra en það var að meðaltali á síðasta ári. Vaxtastig á helstu fjármálamörkuðum helst enn lágt sem nýtist Landsvirkjun vel þar sem meirihluti lána ber breytilega vexti. Afkoma fyrirtækisins mun því sem fyrr ráðast að miklu leyti af þróun álverðs, vaxta og gjaldmiðla.

 

Reykjavík, 16. mars 2012
 

Nánari upplýsingar veitir:
Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
s. 515 9000

 

Um Landsvirkjun
Landsvirkjun var stofnuð árið 1965 og er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar. Hlutverk Landsvirkjunar er að hámarka afrakstur af þeim orkulindum sem fyrirtækinu er trúað fyrir með sjálfbæra nýtingu, verðmætasköpun og hagkvæmni að leiðarljósi. Fyrirtækið vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli og jarðvarma. Landsvirkjun vinnur 75% allrar raforku í landinu og er stærsti raforku­framleiðandi á Íslandi. Um leið er fyrirtækið leiðandi í sjálfbærri nýtingu orkugjafa og stuðlar að aukinni þekkingu, nýsköpun og tækniþróun.


Attachments