Í dag var skrifað undir samninga milli Lánamál ríkisins f.h. ríkissjóðs og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun ríkisverðbréfa á eftirmarkaði.
Frá 1. apríl 2012 hafa fimm fjármálafyrirtæki heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þau eru: Íslandsbanki, MP banki, Landsbankinn, Arion banki og Straumur.
Helstu atriði samningsins eru þessi:
- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum ríkissjóðs.
- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Lánamál ríkisins veita fyrir hönd ríkissjóðs.
- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram tilboð í útboðum ríkisverðbréfa fyrir a.m.k. 100 m.kr. að nafnverði.
- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka ríkisverðbréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnvirði í hvern flokk í NASDAQ OMX kauphöllinni á Íslandi.
- Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að halda verðmun kaup- og sölutilboða innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningunum.
- Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Aðalmiðlara er heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða ef tilteknum skilyrðum er fullnægt.
- Samningurinn gildir frá 1. apríl 2012 til 31. mars 2013.
Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur aðalmiðlara ríkisverðbréfa.