Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Samningar undirritaðir við aðalmiðlara


Í gær, 22. mars 2012, var skrifað undir samninga milli Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðsins og viðskiptavakt á eftirmarkaði í flokkum LSS150224 og LSS150434. Markmiðið með samningnum er að styrkja aðgang lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði.

Frá 26. mars 2012 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: "Aðalmiðlara með skuldabréf lánasjóðsins". Þær eru: Arion Banki hf., Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf. og MP Banki hf.

Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum lánasjóðs sveitarfélaga.

Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum skuldabréfa lánasjóðsins að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum mánuði.

Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem lánasjóðurinn veitir.

Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir LSS150224 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 m.kr. að nafnvirði í Nasdaq OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar. Tilboðsskylda aðalmiðlara í flokki LSS150224 verður lækkuð úr 50 m.kr. í 30 m.kr. þegar tilboðsskylda aðalmiðlara í flokki LSS150434 hefst.

Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir LSS150434 og setur fram kaup- og sölutilboð að nafnvirði 20 m.kr. að lágmarki í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar. Tilboðsskylda aðalmiðlara í flokki LSS150434 hefst þann dag sem útgefið nafnvirði flokksins er orðið 10 milljarðar króna.

Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans fari ekki yfir 1%

Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 200 m.kr. að nafnvirði með þá flokka lánasjóðsins sem viðskiptavakt er með er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.

Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson, sími: +354 515 4947, netfang: egill@lanasjodur.is

  


Attachments