Stefna í lánamálum ríkissjóðs fyrir árin 2012 – 2015

Fjármálaráðuneytið kynnir stefnu í lánamálum ríkissjóðs 2012 - 2015.


Stefnan endurspeglar áform stjórnvalda um framkvæmd lánsfjármögnunar á tímabilinu. Í stefnunni er lýst núverandi samsetningu lána ríkissjóðs, helstu áhættuþáttum við lánastýringu og áhættuskuldbindingum ríkissjóðs. Þá er lýst skipulagi við framkvæmd lánamála. Fjármálaráðuneytið ber ábyrgð á lánaumsýslu ríkisins, mótar stefnu í lánamálum og tekur ákvarðanir um útgáfu verðbréfa. Lánamál ríkisins, sérstök deild innan Seðlabankans, sér um framkvæmd stefnunnar í samræmi við samning milli bankans og fjármálaráðuneytisins . 

Stefna í lánamálum er nú birt öðru sinni. Tvær breytingar hafa verið gerðar á markmiðum og viðmiðum við stýringu lánamála frá fyrri útgáfu. Annars vegar er viðmiðunarreglum um samsetningu lánasafns ríkissjóðs breytt lítillega. Hins vegar er gerð sú breyting á markmiði um       endanlega stærð útgáfuflokka ríkisbréfa að þegar flokkur er eingöngu gefinn út til 2 ára verði endanleg stærð að lágmarki 15 ma.kr. Að öðru leyti er markmið um endanlega stærð flokka ríkisbréfa óbreytt.

  Helstu markmið við lánastýringu ríkisins eru: 

  • Að tryggja að lánsfjárþörf og fjárhagslegum skuldbindingum ríkissjóðs sé mætt með lágmarkskostnaði til lengri tíma litið, að teknu tilliti til varfærinnar áhættustefnu. 
  • Að tryggja að endurgreiðsluferill lána sé í samræmi við greiðslugetu ríkisins til lengri tíma litið. 
  • Að viðhalda og stuðla að frekari uppbyggingu á skilvirkum frum- og eftirmarkaði með innlend ríkisverðbréf. 
  • Að höfða til breiðs hóps fjárfesta í ríkisverðbréfum og nýta fjölbreytta fjármögnunarmöguleika. 
  • Stefnan verður uppfærð og endurskoðuð árlega. 

Uppbygging markflokka ríkisbréfa miðar að því að  hver flokkur verði nægilega stór til að tryggja virka verðmyndun á eftirmarkaði. Árlega verða gefnir út 2, 5 og 10 ára markflokkar ríkisbréfa. Til að draga úr endurfjármögnunaráhættu er stefnt að því að endurgreiðsluferill ríkisverðbréfa verði sem jafnastur. Þá er stefnt að því að meðallánstími verði 4 ár að lágmarki. 

Lán ríkissjóðs í erlendum gjaldmiðlum eru einkum tekin til að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Stefnt er að reglulegri útgáfu markaðsskuldabréfa ríkissjóðs á alþjóðlegum mörkuðum og höfða skal til fjölbreytts hóps fjárfesta.

Lesa má stefnuna í lánamálum ríkissjóðs 2012 – 2015 í heild sinni á vef fjármálaráðuneytisins


Attachments