Vegna stækkunar á leiðarkerfi Icelandair mun félagið vera með 16 vélar í rekstri næsta sumar samanborið við 14 vélar sumarið 2011. Gengið hefur verið frá samningum um tvær Boeing 757-200 vélar sem munu bætast við flota Icelandair á næstu mánuðum. Annars vegar er um að ræða kaup á vél og hins vegar leigu á vél til 20 mánaða. Kaupin eru fjármögnuð úr sjóðum félagsins. Kaupverðið er trúnaðarmál. Báðar vélarnar eru á leið í hefðbundið innleiðingarferli Icelandair til að uppfylla staðla félagsins fyrir notkun. Gert er ráð fyrir að báðar vélarnar verði tilbúnar til notkunar í leiðarkerfi félagsins í maí næst komandi.
Nánari upplýsingar veitir:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801