„Nánari upplýsingar um útgefanda hlutdeildarskírteina.
Landsbréf hf. hafa starfsleyfi sem rekstrarfélag sjóða skv. 7. tl. 1. mgr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Starfsleyfi félagsins var gefið út þann 12. Júní 2009.
Ársreikningur félagsins fyrir árið 2011 er meðfylgjandi. Athygli er vakin á skýrslu stjórnar þar sem fram kemur að félagið hafi keypt rekstur sjóða Landsvaka hf. í mars síðastliðnum og jafnframt að hlutafé félagsins hafi verið aukið á árinu 2012. Hlutafé félagsins var aukið um 1 milljón á genginu 660. Eigið fé félagsins jókst því um 660 milljónir sem voru að hluta notaðar til kaupa á rekstri sjóða Landsvaka hf. Þá eru samþykktir Landsbréfa hf. einnig meðfylgjandi.“