Útboð RVK 09 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2012 að efna til útboðs þann 25. apríl 2012 til stækkunar á skuldabréfaflokki með auðkennið RVK 09 1.

Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð.

Heildarstærð flokksins fyrir þetta útboð nemur alls 14.895 m.kr. að nafnvirði. Heimild til stækkunar á árinu 2012 er 6.230 m.kr. að nafnvirði. Flokkurinn hefur verið stækkaður um 380 m.kr. það sem af er árinu 2012.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 30. apríl 2012.

Umsjón með sölu skuldabréfanna hafa Íslandsbanki og MP banki.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321


Attachments