Orkuveitan og Lánasjóður sveitarfélaga skrifa undir lánasamning


Reykjavík, 2012-05-08 15:07 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Í dag var undirritaður lánasamningur á milli Orkuveitu Reykjavíkur og Lánsjóðs sveitarfélaga að fjárhæð 6,2 milljónir evra. Lánstíminn er til 2020 og eru vextir á lánstímanum Euribor-vextir með 0,46% álagi. Lánið er veitt til að endurfjármagna yfirstandandi fráveituframkvæmdir á Akranesi, í Borgarbyggð og á Kjalarnesi, sem fjármagnaðar voru með óhagkvæmari hætti. Tilkynnt var um að til stæði að taka lánið 26.10. sl.