Arion banki hf. lýkur skuldabréfaútboði


Arion banki hf. lauk á föstudag, þann 11. maí, fyrsta útboði bankans á sértryggðum skuldabréfum sem eru óverðtryggð. Alls voru seld skuldabréf til fagfjárfesta fyrir 1220 milljónir að nafnvirði í skuldabréfaflokknum Arion CB 15.

Stefnt er að því að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á NASDAQ OMX Íslandi nú í maí. Nánari upplýsingar um skráninguna verða kynntar síðar. Skuldabréfin bera 6,50% óverðtryggða vexti og eru á lokagjalddaga árið 2015.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Með útgáfunni nú gefur Arion banki fyrstur banka hér á landi út sértryggð skuldabréf sem eru óverðtryggð. Bankinn hefur sýnt frumkvæði á íbúðalánamarkaði þegar kemur að óverðtryggðum íbúðalánum og kynnt til leiks fjölda nýjunga. Útboðið nú kemur þar í rökréttu framhaldi. Útboðið er enn einn liðurinn í að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans.“


Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, s: 856 7108, haraldur.eidsson@arionbanki.is.