Hér að neðan má sjá þá sem gefa kost á sér í stjórnarkjöri sem fram fer á aðalfundi Haga hf. föstudaginn 8. júní 2012. Fundurinn fer fram á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi í Kópavogi, kl. 10:00.
Núverandi stjórn Haga hf. hefur gefið kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn félagsins. Önnur framboð hafa ekki borist en framboðsfrestur er nú útrunninn.
Stjórnarmenn:
- Árni Hauksson, kt. 250766-5569
- Erna Gísladóttir, kt. 050568-2969
- Friðrik Hallbjörn Karlsson, kt. 180366-4909
- Guðbrandur Sigurðsson, kt. 020561-8239
- Kristín Friðgeirsdóttir, kt. 090871-5369
Fimm eiga sæti í stjórn félagsins og er því sjálfkjörið. Frekari upplýsingar um stjórnarmenn eru aðgengilegar á heimasíðu félagsins, www.hagar.is/hluthafaupplysingar/stjorn