Landsbankinn selur 2% hlut í Hampiðjunni hf.


Að undangengnu útboði sem lauk í dag, mánudaginn 4. júní 2012, hefur Landsbankinn selt 10 milljónir hluta að nafnverði í Hampiðjunni hf. á genginu 8,50 kr. á hlut.

Útboðið fór fram dagana 25. maí til 4. júní 2012 og var fjárfestum boðið að gera tilboð í að lágmarki 10 milljónir hluta að nafnverði í Hampiðjunni á lágmarksgenginu 8,00 krónur á hlut.

Viðskiptadagur er 4. júní 2012 og greiðslu- og afhendingardagur vegna viðskiptanna er fimmtudagurinn 7. júní 2012.

Útboðið fór fram í samræmi við útboðsskilmála sem birtir voru í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi þann 24. maí 2012. Í útboðinu var nýtt undanþáguheimild frá útgáfu lýsingar, í samræmi við heimild í c-lið. 1. töluliðar, 1. málsgreinar 50. greinar laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti.