Marel hf. – Veiting kauprétta


Stjórn Marel hf. ákvað á fundi sínum 4. júní 2012 að veita framkvæmdastjórn félagsins og lykilstarfs­mönnum kauprétti að allt að 11 milljónum hluta í félaginu.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma.  Er þetta í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel þann 29. febrúar 2012, en áður hafði verið samþykkt á aðalfundi félagsins árið 2010 að heimila stjórn að gefa út allt að 45 milljónir nýrra hluta í tengslum við kaupréttarsamninga við starfsmenn.  

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur að hlutabréfum á grunnverðinu EUR 0,967 á hlut[1] sem hækkar árlega um 3% (e. hurdle rate). Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða greiddar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Kaupréttirnir verða virkir í þrennu lagi, fyrst verða 60% kaupréttanna virk í október/nóvember 2015, síðan 20% árið 2016 og loks 20% árið 2017. Starfsmenn geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til ársins 2018, þegar samningarnir renna út og falla þá virkir en ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Marel (Marel hf. eða dótturfélaga að fullu í eigu Marel) á nýtingardegi.

Engir söluréttir eru til staðar eða fjármögnun tengd kaupréttarsamningunum en starfsmenn geta óskað eftir viðskiptum án þess að að leggja fram fjármagn (e. cashless exercise) sé keypt og selt samtímis.

Heildarfjöldi hluta sem Marel hf. hefur nú veitt starfsmönnum sínum kauprétt að eru 33,2 milljónir og er þá meðtalin þessi nýja útgáfa kaupréttarsamninga. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna næstu 5 árin er áætlaður um 1,4 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn og framkvæmdastjórum iðnaðarsetra og sölu- og þjónustu:

 

Nafn Staða Nýr kaupréttur Fyrri og ónýttur kaupréttur Eignarhluti í eigin nafni og /eða  tengdra aðila
Theo Hoen Forstjóri 600.000 2.350.000 1.500.000
Erik Kaman Fjármálastjóri 450.000 1.850.000 1.675.000
Sigsteinn P. Gretarsson Aðstoðarforstjóri 450.000 675.000 25.997
Anton de Weerd Framkvæmdastjóri 315.000 1.100.000 0
Jon B. Gunnarsson Framkvæmdastjóri 210.000 100.000 0
BertJan Hardenbol Framkvæmdastjóri 210.000 125.000 0
David Wilson Framkvæmdastjóri 210.000 50.000 0
Petur Gudjonsson Framkvæmdastjóri 315.000 850.000 114.430

 

[1] Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ OMX Iceland hf. þann 1. júní 2012, þ.e. ISK 156 á hlut, umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands fyrir EUR/ISK: 161,35.