Í maí flutti félagið yfir 165 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 22% fleiri en í maí á síðasta ári. Sætanýting nam 82,2% og jókst um 5,0 prósentustig á milli ára. Þetta er metfjöldi farþega og besta sætanýting félagsins í maí mánuði frá upphafi. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 31%. Aukningin á ferðamannamarkaðinum til Íslands nam 26%, þar af jókst fjöldi ferðmanna frá N-Ameríku um 58%. Fjöldi ferðamanna frá N-Ameríku í maí hefur meira en tvöfaldast síðustu 2 ár, einkum vegna nýrra fluga til borganna Denver, Washington og Seattle.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 29 þúsund í maí sem er hækkun um 9% á milli ára. Sætanýting nam 70,1% og jókst um 5,6 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 23% m.v. maí á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra. Fraktflutningar jukust um 31% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 32% frá maí á síðasta ári. Herbergjanýting var 71,1% og var 0,2 prósentustigum lægri en í maí 2011.
MILLILANDAFLUG | MAÍ 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 165.420 | 22% | 606.780 | 19% |
Sætanýting | 82,2% | 5,0 ppt | 78,6% | 4,1 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 579.848 | 17% | 2.149.893 | 14% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | MAÍ 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 29.131 | 9% | 137.538 | 4% |
Sætanýting | 70,1% | 5,6 ppt | 70,1% | 2,1 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 13.534 | 0% | 62.882 | 0% |
LEIGUFLUG | MAÍ 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 93,6% | -6,4 ppt | 89,2% | -6,8 ppt |
Seldir blokktímar | 2.485 | -23% | 13.166 | -11% |
FRAKTFLUTNINGAR | MAÍ 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 15.917 | 16% | 64.699 | 10% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 8.668 | 31% | 37.502 | 22% |
HÓTEL | MAÍ 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 21.793 | 32% | 95.021 | 18% |
Seldar gistinætur | 15.497 | 32% | 61.710 | 31% |
Herbergjanýting | 71,1% | -0,2 ppt | 64,9% | 6,4 ppt |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010