NIÐURSTAÐA Í ÚTBOÐI ÓVERÐTRYGGÐA RÍKISBRÉFA RIKB 22 1026


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 22 1026 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.

 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 22 1026:

Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.650 m.kr. að nafnverði. 7 tilboðum var tekið fyrir 2.000 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,000 (7,24% ávöxtunarkröfu).

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 12. júní. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 13. júní 2012.


Attachments