CORRECTION: Arion banki hf. lýkur skuldabréfaútboði


Arion banki hf. lauk á föstudag, þann 29. júní, öðru útboði bankans á sértryggðum skuldabréfum sem eru óverðtryggð. Alls voru seld skuldabréf til fagfjárfesta fyrir 1.200 milljónir að nafnvirði í skuldabréfaflokknum Arion CB 15. Stærð flokksins eftir stækkun er 2.520 milljónir.

Stefnt er að því að skuldabréfin verði tekinn til viðskipta á NASDAQ OMX Íslandi í júlí. Nánari upplýsingar um skráninguna verða kynntar síðar. Skuldabréfin bera 6,50% óverðtryggða vexti og eru á lokagjalddaga árið 2015. Skuldabréfin voru seld á ávöxtunarkröfunni 6,45%.


Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, s: 856 7108, haraldur.eidsson@arionbanki.is.