Viðskiptayfirlit júní - NASDAQ OMX Iceland

Heildarvelta í júní 243 milljarðar, samanborið við 226 milljarða í maí


Reykjavík, 2. júlí, 2012 – NASDAQ OMX gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega frá kauphöllum sínum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti NASDAQ OMX Iceland fyrir júní eru eftirfarandi:  

  • Heildarviðskipti með hlutabréf í júní námu 9.572 milljónum eða 456 milljónum á dag. Þessu til samanburðar nam veltan með hlutabréf í maí 4.687 milljónum eða 234 á dag.
  • Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group 4.322 milljónir, með bréf Haga 1.791 milljónir, og með bréf Össurar 1.566 milljónir.
  • Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 1,1% milli mánaða og stendur nú í 1057 stigum. Íslandsbanki var með mestu hlutdeildina á Aðalmarkaði 51,3% (23,9% á árinu), Landsbankinn með 26,4% (42,1% á árinu) og MP banki með 9,5% (11,1% á árinu).
  • Heildarviðskipti með skuldabréf námu 234 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar til 11,1 milljarðs veltu á dag, sama velta var á dag í maímánuði.
  • Alls námu viðskipti með ríkisbréf 181 milljarði en viðskipti með íbúðarbréf námu 51 milljarði. 
  • Landsbankinn var umsvifamestur á skuldabréfamarkaði 30,3% (23,5% á árinu), MP Banki með 23,8% (23,1% á árinu) og Íslandsbanki með 14,7% (19,6% á árinu).

 

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá viðhengi og http://nordic.nasdaqomxtrader.com/newsstatistics/ 

Um NASDAQ OMX

NASDAQ OMX Group, Inc. setti á fót fyrstu rafrænu kauphöllina og hefur ætíð verið frumkvöðull á sviði rafrænna viðskipta. Fyrirtækið eflir efnahagslíf með framsæknum tæknilausnum sem spanna allan viðskiptaferilinn – allt frá áhættustýringu til viðskipta, eftirlits og uppgjörs. Við starfrækjum 24 verðbréfamarkaði, 3 uppgjörshús og 6 verðbréfaskráningar í Bandaríkjunum og Evrópu, sem þjónusta viðskipti með hlutabréf, valrétti, skuldabréf, afleiður, hrávörur, framtíðarsamninga og samsettar vörur. Kerfi NASDAQ OMX geta afgreitt meira en 1 milljón skilaboða á sekúndu á hraða sem er innan við 80 míkrósekúndur á hvert skeyti og státa af 99,999% uppitíma. Þau þjóna meira en 70 kauphöllum í 50 þróuðum löndum og nýmarkaðslöndum og afgreiða 1 af hverjum 10 verðbréfaviðskiptum í heiminum. Verðlaunuð markaðsgögn og vísitölur okkar víðsvegar um heim eru lykilviðmið í fjármálageiranum. Um 3.400 fyrirtæki með heildarmarkaðsvirði í kringum 5,100 milljarða Bandaríkjadala eru skráð á NASDAQ OMX. Nýsköpun þessara fyrirtækja mótar samfélagið sem við búum í – þannig veitum við hugmyndum framtíðarinnar aðgang að fjármagni í dag. Nánari upplýsingar er að finna á www.nasdaqomx.com. Fylgist með okkur á Facebook (http://www.facebook.com/NASDAQ) og Twitter (http://www.twitter.com/nasdaqomx). (Auðkenni: NDAQ og í S&P 500 vísitölunni)

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

 

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.

 

 

- # -

 

NASDAQ OMX fjölmiðlatengill:

Kristín  Jóhannsdóttir

kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com

525 2844


Attachments