Akureyrarbær býður eigendum skuldabréfaflokksins AKU 03 1 sem skráður er í kauphöllinni og er á gjalddaga í mars 2013 að kaupa í skráðum flokki, AKU 10 1, og greiða fyrir með AKU 03 1. Ávöxtunarkrafa AKU 03 1 sem boðið er uppá er 2,50% en ávöxtunarkrafa AKU 10 1 er 3,60%.
Eigendum AKU 03 1 er gefinn frestur til föstudagsins 06.07.12 til að ákveða hvort þeir vilja ganga að tilboðinu. Áætlað er að uppgjör fari fram í vikunni 9.-13. júlí n.k.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við Íslensk verðbréf hf, Ásgeir Már Ásgeirsson, asgeir@iv.is eða Baldur Snorrason, baldur@iv.is í síðasta lagi fyrir klukkan 16:00, föstudaginn 6. júlí 2012