Félagið flutti 246 þúsund farþega í millilandaflugi í júní og voru þeir 15% fleiri en í júní á síðasta ári. Framboðsaukning var 15% á milli ára. Sætanýting nam 82,5% og jókst um 1,7 prósentustig á milli ára. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 24% og aukningin á ferðamannamarkaðinum til Íslands nam um 17%.
Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru um 35 þúsund í júní sem er hækkun um 5% á milli ára. Sætanýting nam 71,1% og jókst um 0,4 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% m.v. júní á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra. Fraktflutningar jukust um 20% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 13% frá júní á síðasta ári. Herbergjanýting var 75,3% og var 2,7 prósentustigum hærri en í júní 2011.
MILLILANDAFLUG | JÚN 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 245.882 | 15% | 852.873 | 18% |
Sætanýting | 82,5% | 1,7 ppt | 79,7% | 3,4 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 859.201 | 15% | 3.009.091 | 14% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | JÚN 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 34.894 | 5% | 172.432 | 4% |
Sætanýting | 71,1% | 0,4 ppt | 70,3% | 1,8 ppt |
Framboðnir sætiskm. ('000) | 18.060 | 1% | 80.895 | 0% |
LEIGUFLUG | JÚN 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 12,1 ppt | 90,7% | -4,0 ppt |
Seldir blokktímar | 2.755 | -7% | 15.920 | -10% |
FRAKTFLUTNINGAR | JÚN 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 18.117 | 3% | 83.862 | 10% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.128 | 20% | 45.246 | 23% |
HÓTEL | JÚN 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 34.849 | 13% | 129.870 | 17% |
Seldar gistinætur | 26.243 | 17% | 87.953 | 27% |
Herbergjanýting | 75,3% | 2,7 ppt | 67,7% | 5,2 ppt |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010