Fjárfestakynning Nýherja hf. mánudaginn 30. júlí kl. 8:30 í ráðstefnusal Nýherja, Borgartúni 37


Nýherji hf. heldur kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna uppgjörs félagsins fyrir annan ársfjórðung 2012 mánudaginn 30. júlí næstkomandi.

Á fundinum mun Þórður Sverrisson forstjóri kynna afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningin fer fram í ráðstefnusal Nýherja, Borgartúni 37 og hefst klukkan 8:30.

Morgunverður verður borinn fram kl. 8:15.

 

Nánari upplýsingar:
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630.


Attachments