Eyrir Invest áætluð afkoma á fyrri árshelmingi 2012


Áætlaður hagnaður Eyris Invest á H1 2012 er 14-19 milljónir evra

Lykileignir Eyris eru 33% eignarhlutur í Marel og 17% eignarhlutur í Stork BV sem á og rekur Stork Technical Services og Fokker Technologies.  Hlutabréf Marel eru skráð á Nasdaq OMX Iceland og Stork BV er óskráð félag með höfuðstöðvar í Hollandi.  Eyrir færir eignarhluti í óskráðum lykileignum á gangvirði (e. fair value).  Afkoma Eyris Invest á H1 2012 samanstendur að mestu af hækkun á hlutabréfaverði Marel og lækkun á virðismati á eignarhlut Eyris í Stork vegan markaðsaðstæðna.

Fjárhagsstaða Eyris er traust með heildareignir nærri 400 milljónum evra og eiginfjárhlutfall yfir 50%.  Áætlaður hagnaður á fyrri árshelmingi 2012 er á bilinu 14-19 milljónir evra eftir skatta.  Eyrir Invest birtir hálfsársuppgjör 2012 í viku 33.

Um Eyrir Invest

Eyrir er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka þátttöku í rekstri og stefnumörkun lykileigna sinna. Kjölfestueignir Eyris eru 33% hlutur í Marel og 17% hlutur í Stork BV sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork Technical Services og Fokker Technologies. Á síðustu árum hefur Eyrir aukið vægi sprotafjárfestinga í eignasafni sínu. Kaupa og styðja til vaxtar“ stefna Eyris hefur skilað góðri ávöxtun frá stofnun félagsins árið 2000.