Félagið flutti 279 þúsund farþega í millilandaflugi í júlí og voru þeir 10% fleiri en í júlí á síðasta ári. Framboðsaukning var 11% á milli ára. Sætanýting nam 85,3% samanborin við 85,4% í júlí 2011. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 13% og aukningin á ferðamannamarkaðinum til Íslands nam um 10%.
Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru um 38 þúsund í júlí sem er aukning um 1% á milli ára. Sætanýting nam 69,6% og drógst saman um 3,9 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 11% m.v. júlí á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra. Fraktflutningar jukust um 7% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 7% frá júlí á síðasta ári. Herbergjanýting var 88,0% og var 2,7 prósentustigum hærri en í júlí 2011.
MILLILANDAFLUG | JÚL 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 278.505 | 10% | 1.131.487 | 16% |
Sætanýting | 85,3% | -0,1 %-stig | 81,0% | 2,5 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 924.131 | 11% | 3.933.222 | 14% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | JÚL 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 38.013 | 1% | 212.463 | 4% |
Sætanýting | 69,6% | -3,9 %-stig | 70,2% | 0,6 %-stig |
Framboðnir sætiskm. ('000) | 22.593 | 2% | 103.488 | 0% |
LEIGUFLUG | JÚL 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 95,0% | 9,9 %-stig | 91,3% | -2,1 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.732 | -11% | 18.653 | -10% |
FRAKTFLUTNINGAR | JÚL 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 18.919 | -1% | 102.820 | 8% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 6.830 | 7% | 52.116 | 21% |
HÓTEL | JÚL 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 40.300 | 7% | 170.170 | 14% |
Seldar gistinætur | 35.469 | 10% | 123.422 | 22% |
Herbergjanýting | 88,0% | 2,7 %-stig | 72,5% | 4,3 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010