Arðbær innri vöxtur á öðrum ársfjórðungi 2012


  • EBITDA 28,8 milljónir USD og eykst um 11,8 milljónir USD á milli ára.
  • Tekjuaukning 15% frá sama tímabili í fyrra.
  • Eiginfjárhlutfall 31%.
  • Handbært fé frá rekstri 72,2 milljónir USD samanborið við 42,9 milljónir USD árið áður.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri

„Afkoma félagsins á öðrum ársfjórðungi var góð og talsvert betri en á sama tímabili 2011. Arðbær innri vöxtur einkenndi fjórðunginn og þá sérstaklega í millilandaflugi félagsins. Farþegum fjölgaði mikið og einkum á markaðinum milli Evrópu og Norður-Ameríku. Einnig var töluverður vöxtur á ferðamannamarkaðnum til Íslands sem hefur jákvæð áhrif á rekstur samstæðunnar og alla íslenska ferðaþjónustu.

Félagið hefur aldrei fyrr verið með eins umfangsmikla starfsemi og það er margt sem þarf að ganga upp til að ná þeim árangri sem við uppskerum nú. Það er ástæða til að þakka okkar samhenta og metnaðarfulla starfsfólki hvernig til hefur tekist.

Reksturinn á fyrri hluta ársins var yfir áætlunum félagsins og horfur fyrir síðari hluta ársins eru jákvæðar. Miðað við núverandi rekstrarforsendur er gert ráð fyrir að EBITDA ársins muni verða á bilinu 110-115 milljónir USD, sem er hækkun frá því sem áður var tilkynnt um.“

 

Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801 

 


Attachments