Traust fjárhagsstaða og áframhaldandi virðisaukning
- Hagnaður á fyrri árshelmingi 2012 nam 18 milljónum evra [H1 2011; -13 milljónir]
- Nettó virði eigna nemur nú 20,3 evrusentum á hlut samanborið við 18,3 evrusenta virði á hlut í ársbyrjun
- Nettó virði eigna hinn 30. júní 2012 var 205 milljónir evra og jókst um 2 milljónir frá ársbyrjun. Eyrir keypti 9% eigin bréfa á tímabilinu fyrir 16 milljónir evra
- Heildareignir eru 380 milljónir evra og eiginfjárhlutfallið er 54% samanborið við 51% í ársbyrjun. Sjóðstaða um mitt ár er 1 milljón evra. Eftir lok uppgjörstímabilsins hefur Eyrir tryggt sér langtímafjármögnun að fjárhæð 22 milljónir evra.
- Stjórn Eyris hefur ákveðið að selja eigin bréf til þess að styrkja fjárhag félagsins enn frekar
Kjölfestueignir Eyris eru 33% hlutur í Marel og 17% hlutur í Stork BV sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork Technical Services og Fokker Technologies. Á síðustu árum hefur Eyrir aukið vægi sprotafjárfestinga í eignasafni sínu.
Mikilvægt skref var stigið í ágúst 2012 þegar Stork Technical Services og Fokker réðust í sjálfstæðar langtímafjármagnanir. Eyrir leggur STS og Fokker til allt að 23 milljónir evra í formi nýs hlutafjár í tengslum við endurfjármögnun félaganna. Fjárhagur lykileigna Eyris er traustur og í samræmi við stefnu og alþjóðleg viðmið með nettó skuldsetningu 2-4x EBITDA.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:
„Við erum ánægð með góða afkomu og trausta fjárhagsstöðu. Ójöfnuður í efnahagsmálum á heimsvísu skapar krefjandi rekstrarskilyrði og fjármálamarkaðir eru almennt veikburða.
Rekstrarfélög okkar hafa vaxið með sókn á nýja markaði á undanförnum árum, jafnt með innri vexti og stefnumarkandi yfirtökum. Mikilsverðum áfanga var náð nú í ágúst þegar Stork Technical Services og Fokker Technologies réðust í sjálfstæðar langtímafjármagnanir. Með nýrri fjármögnun skapast aukinn sveigjanleiki í rekstri og unnt er að ljúka að fullu samþættingu RBG inn í rekstur Stork Technical Services.
Lykilfélög okkar eru vel staðsett í atvinnugreinum með góðan undirliggjandi vöxt og horft til framtíðar erum við hóflega bjartsýn.“
Rekstrarreikningur | ||||||
(í þús. evra) | 2012/6m | 2011 | 2011/6m | 2010 | ||
Rekstrartekjur: | ||||||
Afkoma af verðbréfum | 24.513 | -30.977 | -15.165 | 64.851 | ||
Arðstekjur | 2.489 | 0 | 0 | 0 | ||
Tekjur v/br. reikningsskilaaðferðar hlutdeildar- félags |
0 | 30.107 | 0 | 0 | ||
Afkoma hlutdeildarfélaga | 0 | 11.650 | 2.583 | 7.491 | ||
Vaxtagjöld, nettó | -5.115 | -12.920 | -5.487 | -15.873 | ||
Gengismunur | -2.727 | 4.763 | 5.531 | -3.254 | ||
Hreinar rekstrartekjur | 19.160 | 2.623 | -12.538 | 53.215 | ||
Rekstrargjöld: | ||||||
Laun og launatengd gjöld | 527 | 934 | 451 | 836 | ||
Annar rekstrarkostnaður | 303 | 732 | 370 | 560 | ||
Rekstrargjöld | 830 | 1.666 | 821 | 1.396 | ||
Afkoma tímabilsins | 18.330 | 957 | -13.359 | 51.819 | ||
Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé samtals | -368 | -488 | -190 | -18.639 | ||
Heildarafkoma tímabilsins | 17.962 | 469 | -13.549 | 33.180 | ||
Hagn. á hlut, evrusent (hver hlutur 1 ISK) | 1,75 | 0,09 | -1,33 | 5,14 | ||
Heildarhagn á hlut, evrusent (hver hlutur 1 ISK) | 1,71 | 0,05 | -1,34 | 3,29 | ||
|
||||||
Efnahagsreikningur |
||||||
Eignir: | 2012/6m | 2011 | 2011/6m | 2010 | ||
Handbært fé og bundnar bankainnistæður | 772 | 10.474 | 12.274 | 22.758 | ||
Hlutafjárloforð | 0 | 15.377 | 0 | 0 | ||
Fjárfestingaverðbréf | 373.837 | 364.931 | 174.320 | 256.835 | ||
Hlutdeildarfélög | 0 | 0 | 167.533 | 143.602 | ||
Aðrar kröfur | 2.992 | 2.282 | 2.764 | 1.201 | ||
Rekstrarfjármunir | 2.045 | 2.082 | 2.126 | 2.050 | ||
Eignir samtals | 379.646 | 395.146 | 359.017 | 426.446 | ||
Eigið fé og skuldir: | ||||||
Eigið fé | 204.880 | 202.493 | 173.098 | 186.648 | ||
Ýmsar skuldir | 203 | 239 | 226 | 1.908 | ||
Lántaka | 174.563 | 192.414 | 185.693 | 237.890 | ||
Eigið fé og skuldir samtals | 379.646 | 395.146 | 359.017 | 426.446 | ||
Eiginfjárhlutfall | 54,0% | 51,2% | 48,2% | 43,8% | ||
Lykileignir Eyris
Lykileignir Eyris eru færðar til bókar á gangvirði (e. fair value) eða á markaðsvirði í samræmi við uppgjörsaðferðir alþjóðlegra fjárfestingarfélaga. Lykileignir nema yfir 90% heildareigna Eyris. Hlutabréf Marel eru skráð á Nasdaq OMX Iceland. Stork er óskráð félag, bókað á gangvirði sem metið er á grundvelli kennitalna á markaði og í viðskiptum með sambærileg félög. Á tímabilinu nam hagnaður Eyris af hlutabréfum í Marel um 45 milljónum evra, en 17% eignarhlutur Eyris í Stork var færður niður um 19 milljónir evra vegna markaðsaðstæðna í Evrópu.
Helstu viðburðir á fyrri árshelmingi
18% innri vöxtur hjá Marel
Tekjur Marel á fyrri árshelmingi námu 371 milljón evra og jukust um 18% samanborið við sama tímabil árið á undan. EBITDA var 46 milljónir evra en rekstrar EBITDA nam 44 milljónum á fyrri árshelmingi 2011. Hagnaður eftir skatta var 20 milljónir evra samanborið við 9 milljónir á sama tíma árið á undan.
Eyrir fékk greiddar 2,5 milljónir evra í arð frá Marel á H1 2011 vegna rekstrarársins 2011. Gengi hlutabréfa Marel var 96 evrusent hinn 30. júní 2012, 21% hærra en í ársbyrjun. Gengi hlutabréfa Marel er nú 98 evrusent.
Eyrir hefur verið kjölfestueigandi í Marel frá árinu 2005 og hefur gegnt lykilhlutverki í að móta núverandi vaxtastefnu Marels og stutt stjórnendur félagsins við að hrinda henni í framkvæmd. Á undanförnum árum hefur Marel skilað góðum vexti og styrkt leiðandi stöðu sína á markaði með þeirri stefnu að fjárfesta vel í rannsóknum og þróun sem og markaðssókn. Í dag er gott jafnvægi í sölu hjá Marel og félagið er vel staðsett til þess að njóta góðs af undirliggjandi vexti atvinnugreinarinnar.
Stork Technical Services (STS) og Fokker endurfjármögnuð á H2 2012
Í ágúst 2012 réðst Stork í endurfjármögnun rekstrarfélaga sinna, STS og Fokker. Með sjálfstæðri fjármögnun hvors félags um sig eykst sveigjanleiki í daglegum rekstri og aukin tækifæri skapast fyrir félögin til að vaxa á eigin forsendum. Fjármögnunin gerir einnig unnt að ljúka að fullu samþættingu á rekstri RGB inn í STS. Í endurfjármögnuninni felst einnig eiginfjárframlag frá núverandi hluthöfum og mun Eyrir Invest leggja fram allt að 23 milljónir evra.
Stork Technical Services;
Stork Technical Services er alþjóðlegt fyrirtæki í þjónustu við olíu-, gas- og orkuiðnað. Rekstur STS, að meðtöldum rekstri RBG, er í takt við rekstrarárangur á sama tímabili árið á undan, þó misjafnt eftir deildum. Reksturinn er þyngri á hefðbundnum mörkuðum á meginlandi Evrópu en RBG, með áherslu á Norðursjó og alþjóðlega markaði, sýnir betri rekstrarárangur en árið á undan.
Samanlögð velta STS og RBG árið 2011 var liðlega 1,3 milljarður evra með um 95 milljónir evra í EBITDA. Hjá STS starfa um 14.300 starfsmenn á starfsstöðvum félagsins í Evrópu, Afríku, Miðausturlöndum, Asíu og Ameríku.
Fokker Technologies;
Fokker Technologies hannar og framleiðir íhluti og kerfi fyrir flugiðnaðinn í heiminum og rekur þróunarsetur og verksmiðjur í Hollandi, Tyrklandi, Ameríku og Asíu. Félagið veitir einnig heildstæða þjónustu og framleiðir vörur fyrir eigendur og rekstraraðila flugfara um allan heim. Velta Fokker á árinu 2011 nam um 685 milljónum evra og EBITDA var 74 milljónir. Rekstur Fokker það sem af er ári er í samræmi við áætlanir.
Fjármögnun
Í mars keypti Eyrir eigin hlutabréf sem nema 9% af heildarútgefnu hlutafé félagins fyrir 16 milljónir evra. Heildarútgefið hlutafé í Eyri Invest er um 1.108 milljónir hlutir, þar af eru 100 milljónir eigin bréf. Stærstu hluthafar eru Þórður Magnússon og Árni Oddur Þórðarson og félög að fullu í þeirra eigu með ríflega 34% hlut í Eyrir Invest.
Á fyrri árshelmingi 2012 greiddi Eyrir upp skuldabréfaflokkinn EYRI 05 1, alls að fjárhæð2.540 milljónir ISK (16 milljónir EUR). Á H1 2012 voru skuldabréf Eyris, EYRI 11 1, að nafnvirði 1.012,5 króna (6 milljónir evra) tekin til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland en bréfin voru gefin út árið 2011.
Í júlí tilkynnti Eyrir um langtímafjármögnun frá innlendum bönkum að andvirði samtals 2.100 milljónir íslenskra króna, með lokagjalddaga 2017.
Til viðbótar við ofangreint og áður tilkynnt hefur Eyrir Invest nú í ágúst tryggt sér 8,5 milljóna evru lán hjá innlendum banka. Lánið ber LIBOR + 4,2% vexti. Höfuðstóll og vextir eru á gjalddaga í ágúst 2013. Lánið, sem er tryggt með veðum í óskráðum hlutabréfum, verður nýtt til lausafjárstýringar og stuðnings við núverandi fjárfestingar.
Horfur
Horft fram á veginn er búist við góðum vexti og virðisaukningu í þeim atvinnugreinum sem kjölfestueignir Eyris Invest starfa í; matvæla-, orku- og flugiðnaði. Á síðastliðnum árum hafa lykilfélög Eyris stöðugt styrkt markaðsstöðu sína og eru vel í stakk búin til að njóta góðs af efnahagsbata á heimsvísu. Afkoma getur verið breytileg frá ári til árs.
Um Eyrir Invest
Eyrir er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka þátttöku í rekstri og stefnumörkun lykileigna sinna. Kjölfestueignir Eyris eru 33% hlutur í Marel og 17% hlutur í Stork BV sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork Technical Services og Fokker Technologies. Á síðustu árum hefur Eyrir aukið vægi sprotafjárfestinga í eignasafni sínu sem nú verður gert hærra undir höfði í gegnum félagið Eyrir sprotar slhf. „Kaupa og styðja til vaxtar“ stefna Eyris hefur skilað góðri ávöxtun frá stofnun félagsins um mitt ár 2000.
Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi
Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.