Árshlutareikningur 30.6.2012


Reykjanesbæ, 13. ágúst 2012

 

Stjórn HS Orku hf. samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2012. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

· EBITDA er áfram öflug þrátt fyrir lítilsháttar lækkun frá fyrra ári og var hún  1.391 m.kr. á fyrstu sex mánuði ársins  2012 en var 1.505 m.kr. á sama tímabili 2011. Hluti skýringar er að upptekt véla sem unnar voru á síðasta ári á síðari hluta ársins voru nú unnar á fyrri hluta ársins.

· Eiginfjárhlutfall er mjög sterkt í lok júní 2012 eða um 47,4%. Á tímabilinu var hlutafé aukið um 4.698 m.kr. og var hið nýja hlutafé greitt inn í lok febrúar 2012.

· Reiknaðir fjármagnsliðir hafa ráðandi áhrif á afkomu tímabilsins sem var neikvæð um 700 m.kr. Þessi neikvæða afkoma er tilkomin vegna lækkunar afleiðna (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) um 1.528 m.kr. sem er viðsnúningur frá fyrra ári um 2.654 m.kr. því þá nam hækkun hennar 1.126 m.kr.

· Þrátt fyrir öfluga EBITDA lækka tekjur um 9% eða um 337 m.kr. og námu 3.466 m.kr. í lok tímabilsins en voru 3.803 m.kr. á sama tímabili árið 2011. Að sama skapi lækkar rekstrarkostnaður um 8% eða sem nemur 212 m.kr. milli þessara tímabila. Nokkrar ástæður eru fyrir þessari lækkun tekna, m.a. lækkun á álverði, en stærst vegur hins vegar að samningur um sölu á 35 MWe til Norðuráls Grundartanga rann út 1. október 2011. Á móti því kemur að samningur við Landsvirkjun um kaup á 8 MWe á ári rann út nú um síðustu áramót. Mismunurinn (27 MWe) hefur síðan að mestu verið seldur á almennum markaði en þar er nýtingartíminn talsvert lægri. Flutningskostnaður lækkar síðan þar sem ekki er lengur greitt fyrir flutning þessara 35 MWe til Norðuráls en jafnvirði þess kostnaðar var áður hluti teknanna.

· Frekari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf., í síma 860 5208.


Attachments