Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.

 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 14 0314:

Alls bárust 14 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.520 m.kr. að nafnverði. 12 tilboðum var tekið fyrir 3.020 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,000 (4,06% ávöxtunarkröfu).

RIKB 22 1026:

Alls bárust 14 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.012 m.kr. að nafnverði. 9 tilboðum var tekið fyrir 3.112 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,850 (6,85% ávöxtunarkröfu).

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 fimmtudaginn 30. ágúst. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 31. ágúst 2012.


Attachments