Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs 2012

Afkoma Íbúðalánasjóðs á fyrri árshelmingi 2011


 Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2012 hefur verið staðfestur af stjórn sjóðsins. Rekstrarniðurstaða tímabilsins var neikvæð sem nemur 3.109 milljónum króna samanborið við 1.561 milljóna hagnað á sama tímabili fyrra árs. Eigið fé Íbúðalánasjóðs í lok tímabilsins var 6.445 milljónir samanborið við rúmar 9.555 milljónir í árslok 2011. Eiginfjárhlutfall sjóðsins sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð er 1,4% en var 2,3% í upphafi árs. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0% og viðræður við stjórnvöld miða að því að uppfylla ákvæði reglugerðar.

Rekstrarafkoma fyrir virðisrýrnun er í öllum atriðum í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun ársins. Hreinar rekstrartekjur eru 30% umfram áætlun sem skýrist m.a. af góðum árangri í fjárstýringu, en í heild eru rekstrartekjur 26% umfram áætlun. Rekstrargjöld í heild eru 7% undir áætlun en gera má ráð fyrir að kostnaður vegna stærri verkefna sjóðsins komi fram á síðari árshluta. Áætlun sjóðsins gerði ráð fyrir tapi á fyrri hluta árs að upphæð 1.161 milljón króna.


Attachments

Árshlutareikningur 30 06 2012 final VI.pdf Afkomutilkynning ÍLS -Árshlutauppgjör 2012.pdf