Félagið flutti 271 þúsund farþega í millilandaflugi í ágúst eða fleiri en nokkru sinni fyrr í ágústmánuði og voru þeir 9% fleiri en á síðasta ári. Framboðsaukning var 12% á milli ára. Sætanýting nam 84,9% samanborið við 85,3% í ágúst 2011. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 19% og voru þeir 50% af farþegum félagsins.
Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru 36,9 þúsund í ágúst sem er lækkun um 3% á milli ára. Sætanýting nam 69,3% og dróst saman um 4,9 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 11% m.v. ágúst á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra. Fraktflutningar jukust um 5% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 5% frá ágúst á síðasta ári. Herbergjanýting var 88,1% og var 5,8 prósentustigum hærri en í ágúst 2011.
MILLILANDAFLUG | ÁGÚ 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 271,025 | 9% | 1.400.103 | 14% |
Sætanýting | 84,9% | -0,4 %-stig | 81,8% | 2,0 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 923.995 | 12% | 4.857.217 | 13% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | ÁGÚ 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 36.920 | -3% | 238.719 | 0% |
Sætanýting | 69,3% | -4,9 %-stig | 68,1% | -1,7 %-stig |
Framboðnir sætiskm. ('000) | 23.995 | 10% | 128.605 | 3% |
LEIGUFLUG | ÁGÚ 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 92,0% | 7,4 %-stig | 91,4% | -0,9 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.778 | -11% | 21.431 | -10% |
FRAKTFLUTNINGAR | ÁGÚ 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 19.026 | 2% | 121.846 | 7% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 6.399 | 5% | 58.515 | 19% |
HÓTEL | ÁGÚ 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 33.784 | 5% | 203.954 | 13% |
Seldar gistinætur | 29.755 | 12% | 153.323 | 20% |
Herbergjanýting | 88,1% | 5,8 %-stig | 75,2% | 4,4 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason,framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir,forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group,s: 840-7010