NIÐURSTAÐA Í ÚTBOÐI ÓVERÐTRYGGÐRA RÍKISBRÉFA


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.

  

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 14 0314:

Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.880 m.kr. að nafnverði. Einu tilboði var tekið fyrir 4.000 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,100 (3,97% ávöxtunarkröfu).

 

RIKB 22 1026:

Alls bárust 29 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.720 m.kr. að nafnverði. 22 tilboðum var tekið fyrir 4.370 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,500 (7,03% ávöxtunarkröfu).

 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 11. september. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 12. september 2012.


Attachments

NidurstodurRIKB.pdf