Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar RVK 19 1


Reykjavíkurborg var með skuldabréfaútboð í flokki RVK 19 1 þann 19. september 2012. 

 

Alls bárust tilboð í RVK 19 1 að nafnvirði ISK 720.000.000 og ávöxtunarkrafa á bilinu 2,39% - 3,10%. Ákveðið var að hafna öllum tilboðum. Útistandandi fyrir voru ISK 585.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 585.000.000.

 

 

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321
Netfang: bbs@rvk.is