Félagið flutti 131 þúsund farþega í millilandaflugi í nóvember og voru þeir 25% fleiri en í nóvember á síðasta ári. Framboðsaukning var 31% á milli ára. Sætanýting nam 75,9% samanborið við 76,9% í nóvember 2011.
Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru tæplega 26 þúsund í nóvember sem er lækkun um 4% á milli ára. Sætanýting nam 72,4% og jókst um 5,6 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 12% m.v. nóvember á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra. Fraktflutningar jukust um 6% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 24% frá nóvember á síðasta ári. Herbergjanýting var 61,8% og var 5,9 prósentustigum hærri en í nóvember 2011.
MILLILANDAFLUG | NÓV 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 131.021 | 25% | 1.900.770 | 16% |
Sætanýting | 75,9% | -1,0 ppt | 81,1% | 1,6 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 504.011 | 31% | 6.699.509 | 16% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | NÓV 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 25.665 | -4% | 320.812 | -1% |
Sætanýting | 72,4% | 5,6 ppt | 69,4% | 0,4 ppt |
Framboðnir sætiskm. ('000) | 11.171 | -11% | 167.251 | 0% |
LEIGUFLUG | NÓV 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 86,4% | -7,4 ppt | 92,5% | -0,6 ppt |
Seldir blokktímar | 2.140 | -12% | 28.700 | -9% |
FRAKTFLUTNINGAR | NÓV 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 14.187 | 12% | 169.072 | 8% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.464 | 6% | 81.941 | 16% |
HÓTEL | NÓV 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.200 | 24% | 271.294 | 15% |
Seldar gistinætur | 13.712 | 37% | 199.536 | 22% |
Herbergjanýting | 61,8% | 5,9 ppt | 73,5% | 3,8 ppt |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010