Yfirlýsing peningastefnunefndar 12. desember 2012 - ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum


"Þessi tilkynning er upprunalega birt á vefsetri Seðlabanka Íslands. Hún hefur ekki verið birt opinberlega á Evrópska efnahagssvæðinu af hálfu Seðlabanka Íslands, sbr. skilgreiningu laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Vísað er til vefseturs Seðlabanka Íslands http://sedlabanki.is"

 

 

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum.

Nýjustu hagtölur benda til þess að efnahagsþróun að undanförnu hafi verið í samræmi við spá Seðlabankans frá því í nóvember. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar var hagvöxtur á fyrstu þremur fjórðungum ársins 2%, en í nóvemberspá bankans var áætlaður vöxtur á sama tímabili 2,1%. Gengi krónunnar hefur lítið breyst frá síðustu vaxtaákvörðun og verðbólga þróast eins og spáð var.

Laust taumhald peningastefnunnar á undanförnum misserum hefur stutt við efnahagsbatann. Hækkun vaxta undanfarið rúmt ár og hjöðnun verðbólgu hafa dregið umtalsvert úr slaka peningastefnunnar. Eftir því sem slakinn hverfur úr þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að slaki peningastefnunnar hverfi einnig. Að hve miklu leyti aðlögunin á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar, sem ræðst að miklu leyti af þróun gengis krónunnar og launaákvörðunum. Hvort nafnvextir bankans verða óbreyttir á næstunni er m.a. háð því að endurskoðun kjarasamninga á nýju ári samrýmist hjöðnun verðbólgu að markmiðinu.

 

Vextir Seðlabanka Íslands verða eftir ákvörðunina sem hér segir:

Daglánavextir: 7,00%
Vextir af lánum gegn veði til sjö daga: 6,00%
Hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum: 5,75%
Innlánsvextir: 5,00%