Útboð ríkisvíxla RIKV 13 0415 OG RIKV 13 0715


Föstudaginn 11. janúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 13 0415 og RIKV 13 0715 sem eru með gjalddaga 15. apríl og 15. júlí 2013.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagur 15. janúar 2013.

Sótt verður um að RIKV 13 0715 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á Íslandi miðvikudaginn 16. janúar 2013.


Attachments

Frett_RIKV_08jan13.pdf Utbodsskilmalar_RIKV_11jan.13.pdf