Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:
RIKB 14 0314:
Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.310 m.kr. að nafnverði. 2 tilboðum var tekið fyrir 1.525 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,450 (3,42% ávöxtunarkröfu).
RIKB 22 1026:
Alls bárust 33 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.860 m.kr. að nafnverði. 31 tilboði var tekið fyrir 5.660 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 104,530 (6,60% ávöxtunarkröfu).
Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 22. janúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 23. janúar 2013.