Vísað er í tilkynningar frá útgefanda þann 16. janúar 2013 hins vegar og 18. janúar 2013 annars vegar, þar sem fram kemur að OFAN SVÍV fagfjárfestasjóður og útgefandi skuldabréfaflokksins OFANSV 11 1 óski eftir því við eigendur skuldabréfaflokksins að heimild verði veitt til að breyta skilmálum flokksins þannig að skuldaraskipti verði gerð á lánssamningi útgefanda við SVÍV ses. kt. 530978-0449.
Eftirfarandi skilmálabreyting hefur verið gerð á skuldabréfaflokknum með auðkennið OFANSV 11 1 og ISIN nr. IS0000020998 þar sem útgefandi er OFAN SVÍV fagfjárfestasjóður kt. 461211-9760 í rekstri Stefnis hf.:
Skuldskeyting hefur orðið á lánssamningi útgefanda við SVÍV ses. kt. 530978-0449 þar sem nýr skuldari lánssamnings útgefanda er Reginn A1 hf. kt. 521009-1010. Breytingin felur í sér eftirfarandi:
- Þar sem OFAN SVÍV ses. kt. 530978-0449 er tilgreint í útgáfulýsingu kemur í staðinn Reginn A1, kt. 521009-1010.
Skilmálabreyting þessi hefur verið samþykkt af öllum kröfuhöfum og útgefanda flokksins. Einnig hefur reglum útgefanda verið breytt með sama hætti.
Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon forstöðmaður og sjóðsstjóri hjá Stefni í síma 444-7472.